Þrettándablaðið 2023 komið út

04.jan.2023  15:00

Þrettándablaðið er komið út fyrir árið 2023. Þrettándinn verður loksins haldinn með hefðbundnu sniði aftur eftir samkomutakmarkanir síðustu ára.

Hægt er að skoða blaðið með því að smella hér.

Í blaðinu er viðtal við handknattleikskonu ársins á Íslandi 2022, ÍBV-ara meistaraflokks karla árið 2022, viðtal við tröll og margar skemmtilegar myndir frá íþróttaárinu og gömlum Þrettándum.

Í blaðinu er einnig annáll þar sem framkvæmdastjóri félagsins fer yfir árið í máli og myndum.

Við viljum fá að þakka öllum styrktaraðilum okkar fyrir að koma að gerð blaðsins og er framlag þeirra til knattspyrnudeildarinnar okkur mjög mikilvægt.