Þrettándinn

 

Þrettándinn

 

Þrettándagleði hefur verið haldin í Eyjum óslitið frá árinu 1948. Um 200 manns koma að hátíðinni þar sem Grýla, Leppalúði, jólasveinar, tröll, álfar og aðrar kynjaverur kveðja jólahátíðina með Eyjamönnum og gestum þeirra.

Knattspyrnufélagið Týr tók við þrettándagleðinni í Eyjum árið 1948. Frá því að félögin Týr og Þór voru sameinuð undir merkjum ÍBV 1997 hefur íþróttafélagið haldið hátíðina. Kynslóð fram af kynslóð hafa Eyjamenn haldið þréttándahátíðinni gangandi. Nokkrir hópar koma að skipulagi og framkvæmd hátíðarinnar, má þar nefna blysgöngu jólasveina, gerð trölla og flugeldasýningar. Hátíðin er magnað sjónarspil og hvílir yfir henni mikil dulúð.

Komin er nokkurra ára hefð fyrir því að halda þrettándagleði ÍBV um helgi. Þetta hefur gefist vel og er hátíðin farin að lokka aukin fjölda gesta til Eyja til ánægju og hagsbóta fyrir hátíðina og samfélagið allt. Undanfarin ár hefur þessi hátíð verið nokkur konar bæjarhátíð sem stendur alla helgina og hafa margir komið að hátíðinni með ÍBV íþróttafélagi t.d. matsölustaðir, verslanir og Vestmannaeyjabær.
 
Vestmannaeyjabær auglýsir dagskránna þegar nær dregur en undanfarin ár hefur hún hafist á grímuballi Eyverja kl. 15:00 á föstudeginum og staðið fram eftir degi á sunnudag.
 
Fyrirtæki og einstaklingar, sem áhuga hafa á því að koma að dagskránni með einum eða öðrum hætti eru hvattir til að hafa samband við Vestmannaeyjabæ. postur@vestmannaeyjar.is.

 

Á Facebook síðu Þrettándans í Eyjum er hægt að sjá myndir og upplýsingar um hátíðina ár hvert.