Þrettándinn í kvöld

06.jan.2012  07:59

-Nokkrar ábendingar fyrir kvöldið

Í kvöld koma Grýla, leppalúði og allt þeirra hyski niður úr fjöllunum til að kveðja jólin með okkur. Við viljum koma á framfæri nokkrum ábendingum til þeirra sem mæta á gleðina í kvöld.
 
  1. Rétt er að benda á að gönguleiðin verður sú sama og í fyrra. Það verður gengið áfram upp Illugagötu og beygt niður Höfðaveg.
  2. Bíleigendur eru beðnir um til að leggja ekki bifreiðum sínum í gönguleiðinni.
  3. Þá eru foreldrar hvattir til að setja börn sín í jólasveinabúninga í kvöld.
Það lífgar uppá stemmninguna auk þess sem að jólasveinarnir leiða frekar börnin uppá velli séu þau í búningum. Að endingu viljum við benda á þrettándamyndbandið sem gert var fyrir þrettándann árið 2010. Það má skoða það hér. Það er um að gera að koma sér í gírinn með því að horfa á myndbandið.