Mikil Þrettándagleði framundan

04.jan.2012  10:48

Ákvörðun um frestun ekki tekin fyrr en á föstudag

Nú styttist í Þrettándagleði ÍBV. Stefnt er að halda hana n.k föstudag klukkan 19.00. Ef ekki viðrar þá og spáin er betri fyrir laugardag mun gleðin færast yfir á laugardag. Ákvörðun um þetta verður þó ekki tekin fyrr en á föstudaginn. Hægt er að nálgast dagskrá helgarinnar með því að smella á ,,Meira"

Dagskrá þrettándahátíðar álfa, trölla og jólasveina

5. – 8. janúar 2012

 

Fimmtudagur

Kl. 17.00 – Anddyri Safnahúss

Opnun á myndlistarsýningu Sigurdísar Hörpu Arnarsdóttur

Kl. 21.00  Blítt og létt hópurinn -  Eyjakvöld á Kaffi Kró

 

Föstudagur

 

14.00 – 16.00  Diskó- grímuball Eyverja í Höllinni

Jólasveinninn mætir og aðrar fígúrur einnig. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá glaðning frá Eyverjum og nammipoka frá jólasveininum.  

 

19.00  Hin eina sanna Þrettándagleði  ÍBV

(Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll og m.fl.)

 

00.00  Þrettándaball – Ballgestir hvattir til að mæta í grímubúningum

Land og synir leika fyrir dansi.

 

 

 

Laugardagur

13.00 til 17.00:  Langur laugardagur í verslunum

 

Tröllatilboð og álfaafslættir í fjölda verslana og veitingastöðum  bæjarins. 

 

11.00 til 15.00: Tröllagleði í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja

Fjölskylduleikir í öllum íþróttasölum undir stjórn íþróttaþjálfara , allir íþróttasalir opnir.

Fjölbreyttar þrautir í umsjón Írisar Sæmundsdóttur og íþróttafélaganna.

Leikfélag Vestmannaeyja sér um andlitsmálun

 

Einstök skemmtun fyrir börn og fullorðna.

 

14.00 – 16.00

Opið hús í Slökkvistöð Vestmannaeyja.  Tæki og tól til sýnis m.m.

 

13.00 – 16.00  Opið á  Náttúrugripasafni, 

 

13.00 – 16.00  Jólaratleikur á Byggðasafninu

 

13.00 – 16.00 Opið á Surtseyjarstofu

 

 

15.00  Ronja ræningjadóttir  – barnaleikrit

            Leiksýning í Bæjarleikhúsinu

 

16.00 – 19.00   Brunum saman í  Herjólfsdal

                          Kakó, smákökusala m.m. og létt lög í Dalnum

 

21.00 Pop-quiz – spurningakeppni í Hallarlundi

          Hreimur Heimisson stjórnar keppninni,  leikur og syngur fram eftir nóttu.

 

 

 

 

Sunnudagur

 

13.00  Tröllamessa í Stafkirkjunni.  Séra  Kristján Björnsson

 

14.00  Álfar og tröll í Eyjum - Upplestur og sögur í Bókasafni Vestmannaeyja. 

 Valdar þjóðsögur – draugasögur Fríða Sigurðar og Zindri Freyr lesa og leika.

 

16.00  Ronja ræningjadóttir  – barnaleikrit

            Leiksýning í Bæjarleikhúsinu

 

20.00  Bjartar vonir vakna –  Höllinni

           Stórtónleikar til minningar um Oddgeir Kristjánsson

Forsala í LA TIENDA Strandvegi 45a: kr. 5.900

Ef greitt er með Íslandsbankakorti þá kr. 4.900

Við innganginn kr. 6.900.-

 

 

Sýning Sigurdísar er opin alla helgina frá 13.00 – 16.00

 

Aðgangseyrir á söfnin:   tveir  fyrir einn  og  frítt fyrir börn

 

ATHUGIÐ!  Ef veður á föstudeginum er óhagstætt frestast þettándaganga til laugardags, sem og þrettándaballið. 

Pop-Quiz færist  þess í stað  fram til  föstudagskvöldsins.

Laugardagsýning LV á Ronju verður þá kl. 14.00 í stað 15.00 .

 

Ef enginn verður snjórinn - verður „brunum saman“ frestað!

 

Undirbúningsnefndin áskilur sér rétt til breytinga.