Nú styttist óðum í jólahátíðina og þar af leiðandi í Þrettándagleðina sem haldin verður með pompi og prakt þann 6. janúar. Þeir sem að koma að vinnu við Þrettándagleði ÍBV eru boðaðir til fundar á morgun, þriðjudag klukkan 20.00 í Týsheimilinu. Nýir sjálfboðaliðar eru boðnir velkomnir.