ÍBV-íþróttafélag í samstarfi við bæjaryfirvöld standa að þrettándagleðinni ár hvert. Í fyrra var í fyrsta skipti farin sú leið að hafa bæjarhátíð alla helgina í tengslum við þretttándann. Kom þessi tilraun mjög vel út og er þetta komið til að vera. Þrettándagleði ÍBV er mikil og stór hátíð sem að hátt í 200 manns koma að. ÍBV lítur fyrst og fremst á þessa hátíð sem þakkir frá félaginu til bæjarbúa fyrir stuðninginn á liðnu ári.