Búið að ákveða tímasetningu á þrettándanum.

16.sep.2009  13:03

Verður haldinn föstudaginn 8. Janúar kl 19.00

Þá hefur þrettándanefndin komið saman og lagt drög að næsta þrettánda. Eitt af því fyrsta sem þarf að ákveða er dagsetning á hátíðarhöldunum. Ákveðið var að færa þrettánda-hátíðina til 8. Janúar sem að er föstudagur og er áætlað að herlegheitin hefjist klukkan 19.00.
Í fyrra var þrettándinn einnig færður fram að helgi og mæltist það vel fyrir. Mikið af fólki mætti í gönguna og enn fleira fólk var á vellinum.  Annars er verið að ræða ýmsar nýjungar í nefndinni og verða þær vonandi kynntar áður en langt um líður.