Knattspyrnukonan unga Milena Mihaela Patru var í eldlínunni með íslenska U16 ára landsliðinu í Finnlandi á dögunum þar sem Ísland var ein fjögurra þjóða sem tóku þátt í UEFA þróunarmóti. Ásamt gestgjöfunum og Íslendingum voru Írar og Ungverjar að spila á mótinu.
Íslenska liðið var skipað 12 leikmönnum fæddum 2010 og níu leikmönnum fæddum 2011, árið sem Milena er fædd.
Milena hefur leikið upp alla yngri flokkana með ÍBV og aldrei átt erfitt með að skora mörk. Hún hefur nú tekið þátt í 24 meistaraflokksleikjum og skorað í þeim 11 mörk, þar af sex í 10 leikjum í Lengjudeildinni í fyrra er ÍBV tryggði sér sæti í efstu deild.
Í fyrsta leiknum léku stelpurnar við Ungverja en þar kom Milena inn á eftir 60 mínútna leik, lokatölur þar voru 1:0 fyrir Ungverja.
Í öðrum leiknum léku stelpurnar við Íra, Milena byrjaði þann leik og lék vel í fremstu víglínu eins og í fyrsta leiknum, Írar voru sterkara liðið í leiknum og unnu 3:0 en þær unnu einnig riðilinn með fullt hús stiga.
Í lokaleiknum sem fram fór í dag léku stelpurnar við gestgjafa Finna en finnsku stelpurnar náðu að sigra 1:0 og Milena kom inn á þegar korter var eftir af leiknum, aftur sem framherji.
Við hjá ÍBV erum stolt af Milenu og hlökkum til að fylgjast áfram með henni í framtíðinni.