Knattspyrnukonan unga og efnilega, Milena Mihaela Patru, lék með U17 landsliði Íslands í Portúgal á dögunum en hún tók þátt í öllum þremur leikjum liðsins gegn öflugum knattspyrnuþjóðum.
Milena hefur leikið vel á tímabilinu með ÍBV, þar sem hún hefur skorað mikið í 3. flokki félagsins og einnig tókst henni að skora sitt fyrsta mark í efstu deild kvenna gegn Þrótti á dögunum. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum innan vallar en hún hefur þrátt fyrir ungan aldur skorað 12 mörk fyrir meistaraflokk ÍBV.
Fyrsti leikurinn á æfingamótinu var gegn Wales en þar lék Milena síðustu 20 mínútur leiksins sem endaði 2:2. Í næsta leik gegn Portúgal kom hún inn á sem varamaður í hálfleik í leik sem íslenska liðið tapaði naumlega 0:1.
Hún var í byrjunarliði gegn Danmörku í síðasta leik mótsins en þar fiskaði hún víti eftir að hún stakk varnarmann Dana af og náði knettinum á undan markverðinum sem felldi hana.
Virkilega flott frammistaða hjá Milenu með U17 ára landsliðinu en hún er einungis 15 ára gömul og á framtíðina fyrir sér.