Bandaríska knattspyrnukonan Caeley Lordemann hefur skrifað undir eins árs samning við knattspyrnudeild ÍBV en hún æfði með liðinu í janúar.
Caeley sem er 24 ára miðjumaður kemur til með að styrkja lið ÍBV sem verður í eldlínunni í Bestu deildinni í sumar. Liðið tekur þátt í Lengjubikarnum í febrúar og mars.
Hún lék í spænsku úrvalsdeildinni með Santa Teresa og var á mála hjá bandaríska liðinu NC Courage 2021 en liðið leikur í efstu deild þar í landi.
Í Bandaríkjunum hefur hún einnig leikið með háskólaliði Colorado State, þar var hún hluti af liðinu sem náði besta árangri í sögu skólans. Á lokaári sína þar skoraði hún 11 mörk í 20 leikjum, sjö þeirra voru sigurmörk og öll úr opnum leik.
ÍBV býður Caeley velkomna til liðsins og hlökkum við til að sjá hana klæðast hvítu treyjunni.