Fótbolti - Olga Sevcova framlengir samning sinn

19.ágú.2022  14:10

Knattspyrnukonan Olga Sevcova hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV til ársins 2025. Olga hefur verið einn af burðarásum liðsins síðustu ár og leikið gríðarlega vel á leiktíðinni. Hún var í úrvalsliði fyrri hluta tímabilsins.

Olga var þá valin besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð. Hún hefur alls leikið 58 leiki fyrir ÍBV í öllum keppnum og skorað í þeim 17 mörk. 

Olga á fjöldann allan af landsleikjum fyrir Lettland og hefur verið valin knattspyrnukona ársins þar í landi fimm sinnum.

Þessar fréttir eru mikil gleðitíðindi fyrir knattspyrnudeildina, lið ÍBV situr nú í 5. sæti deildarinnar þegar fimm leikir eru eftir.

Myndirnar af Olgu að ofan eru eftir undirskrift í dag.