Fótbolti - Guðný áfram hjá ÍBV

22.des.2021  16:04

Guðný Geirsdóttir hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með liðinu næstu tvö árin. Guðný hefur leikið 28 leiki með meistaraflokki ÍBV en hún er markvörður og lék einnig 11 leiki með Selfyssingum á síðustu leiktíð, þar sem hún var á láni.

Guðný er 24 ára í dag og fagnar því afmælisdeginum sínum með nýjum samningi.

Við hjá ÍBV bindum miklar vonir við Guðnýju og vonumst til þess að framtíð hennar verði björt og farsæl með liðinu, sem leikur í efstu deild kvenna 12. árið í röð árið 2022.