Fótbolti - Fótboltaskóli ÍBV á milli jóla og nýárs

16.des.2021  09:00
Fótboltaskóli ÍBV 27., 28. og 29. desember!
 
Við ætlum að vera með fótboltaskóla ÍBV á milli jóla og nýárs en það verða þjálfarar yngri flokka og leikmenn meistaraflokka sem sjá um skólann. Æfingar fara allar fram í Herjólfshöllinni og lýkur síðustu æfingu hvors hóps á pizzaveislu í Týsheimilinu.
 
Hermann Hreiðarsson, þjálfari meistaraflokks karla og fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins verður gestaþjálfari í fótboltaskólanum.
 
Fyrri hópur: 6. og 7. flokkur karla og kvenna - frá klukkan 10:00 - 12:00 alla dagana
Seinni hópur: 4. og 5. flokkur karla og kvenna - frá klukkan 12:30 - 14:30 alla dagana
 
Verð í skólann í ár er 1.000 kr. og fer skráning fram á knattspyrna@ibv.is. Í skráningu verður að taka fram nafn og kennitölu iðkanda.
 
Jólasveinar elska að gefa gjafabréf í fótboltaskólann í skóinn og er þeim bent á að panta svoleiðis í gegnum knattspyrna@ibv.is.