Fótbolti - Alex Freyr til Eyja

20.nóv.2021  15:08

Það er mikið gleðiefni að tilkynna að Alex Freyr Hilmarsson hefur samið við ÍBV til næstu 3ja ára. Alex kemur frá KR en hann hefur einnig leikið með Grindavík og Víkingi R í efstu deild. Þessi öflugi miðjumaður hefur spilað 295 leiki í Meistaraflokki og skorað í þeim 60 mörk. 

Til gamans má geta að Alex Freyr er menntaður sjávarútvegsfræðingur en hann flytur með fjölskyldu sína til Eyja af þessu tilefni og styrkir lið ÍBV í baráttunni í deild þeirra bestu.

Velkominn til Eyja Alex Freyr og áfram ÍBV, alltaf, alls staðar.

Mynd: Hafliðið Breiðfjörð, Fotbolti.net