Handbolti - Petar Jokanovic framlengir við ÍBV

30.jún.2020  13:44

Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍBV.

Petar kom til liðs við ÍBV fyrir síðasta tímabil og átti fínasta tímabil. Hann varði á köflum meistaralega í markinu og átti m.a. stóran þátt í sigri liðsins í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni í mars. Petar er mjög ánægður með umhverfið og fólkið í Vestmannaeyjum og vildi því taka slaginn með okkur aftur á næsta tímabili.

Við hjá ÍBV erum ánægð með að hafa gengið frá samningi við Petar og hlökkum til samstarfsins í vetur.