Handbolti - Lokahóf handknattleiksdeildar 2023

05.jún.2023  11:38

Hrafnhildur Hanna og Rúnar best

Það var líf og fjör í Kiwanis á föstudagskvöldið þegar handknattleiksdeild ÍBV hélt lokahóf meistaraflokkanna, enda var ekki annað hægt eftir frábæran árangur í vetur þar sem kvennaliðið varð bikarmeistari, deildarmeistari og höfnuðu í 2. sæti í Íslandsmótinu og karlaliðið varð Íslandsmeistari.

Dagskrá kvöldsins var með nokkuð hefðbundnum hætti þar sem má nefna ræður Sæunnar Magnúsdóttur formanns ÍBV Íþróttafélags og Garðars Sigurjónssonar formanns handknattleiksdeildar, verðlaunaafhendingu, heiðrun leikmanna og skemmtiatriði leikmanna.

Verðlaunahafar voru eftirfarandi:

3. flokkur karla

Besti leikmaðurinn: Elmar Erlingsson

Efnilegasti leikmaðurinn: Hinrik Hugi Heiðarsson

Mestu framfarirnar: Ívar Bessi Viðarsson

ÍBV-ari: Andri Andersen

 

Meistaraflokkur kvenna

Besti leikmaðurinn: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir

Fréttabikarinn (efnilegasti leikmaðurinn): Amelía Dís Einarsdóttir

Mestu framfarirnar: Sara Dröfn Richardsdóttir

ÍBV-ari: Ólöf María Stefánsdóttir

 

Meistaraflokkur karla

Besti leikmaðurinn: Rúnar Kárason

Fréttabikarinn (efnilegasti leikmaðurinn): Ívar Bessi Viðarsson

Mestu framfarirnar: Arnór Viðarsson

ÍBV-ari: Nökkvi Snær Óðinsson

 

3 leikmenn karlaliðsins og 4 leikmenn kvennaliðsins voru heiðruð en þau kveðja félagið eftir tímabilið, það eru þau Tara Sól Úranusdóttir, Ólöf María Stefánsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Ingibjørg Olsen, Rúnar Kárason, Róbert Sigurðarson og Janus Dam Djurhuus.

Þá var Erlingur Birgir Richardsson heiðraður, en hann lætur af störfum sem aðalþjálfari karla liðsins. Elísa Sigurðardóttir mætti fyrir hönd Íþróttabandalags Vestmannaeyja og sæmdi Erling silfurmerki bandalagsins fyrir framlag til íþróttamála.

Og Vilmar Þór Bjarnason var heiðraður og þakkað fyrir vel unnin störf sl. 4 ár, en hann lætur af störfum sem framkvæmdastjór handknattleiksdeildarinn um mánaðarmótin.