Handbolti - Lokahóf handknattleiksdeildar 2020

08.jún.2020  16:04

Það var líf og fjör á föstudagskvöldið þegar handknattleiksdeild ÍBV hélt lokahóf meistaraflokka, og 3. flokka karla og kvenna.

Dagskrá kvöldsins var með nokkuð hefðbundnum hætti þar sem má nefna ræður Þórs Vilhjálmssonar formanns ÍBV íþróttafélags og Davíðs Þórs Óskarssonar formanns handknattleiksdeildar, verðlaunaafhendingu, heiðrun leikmanna og skemmtiatriði leikmanna. Veislustjóri kvöldsins var fyrrverandi framkvæmdastjóri deildarinnar Viktor Hólm Jónmundsson.

3 leikmenn karlaliðsins hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna og voru þeir heiðraðir á hófinu, þeir eru:

Grétar Þór Eyþórsson

Magnús Stefánsson

Sigurbergur Sveinsson

 

Í öllum flokkum voru veitt 4 verðlaun fyrir keppnistímabilið 2019-20 en það voru verðlaun fyrir fyrir mestu framfarir, efnilegasta leikmann, ÍBV-ara og besta leikmann. Verðlaunahafar voru eftirfarandi:

3.flokkur kvenna:

Mestu framfarir – Birta Líf Agnarsdóttir

ÍBV-ari – Erika Ýr Ómarsdóttir

Efnilegasti leikmaður – Aníta Björk Valgeirsdóttir

Besti leikmaður – Aðalheiður Stella Sæmundsdóttir

 

3.flokkur karla:

Mestu framfarir – Sæþór Páll Jónsson

ÍBV-ari – Gunnlaugur Hróðmar Tórshamar

Efnilegasti leikmaður – Gauti Gunnarsson

Besti leikmaður – Arnór Viðarsson

 

Meistaraflokkur karla:

Mestu framfarir – Arnór Viðarsson

ÍBV-ari – Elliði Snær Viðarsson

Efnilegasti leikmaður (Fréttabikarinn) – Arnór Viðarsson

Besti leikmaður – Kristján Örn Kristjánsson (Donni)

 

Meistaraflokkur kvenna:

Mestu framfarir – Ásta Björt Júlíusdóttir

ÍBV-ari – Ester Óskarsdóttir

Efnilegasti leikmaður (Fréttabikarinn) – Bríet Ómarsdóttir

Besti leikmaður – Sunna Jónsdóttir

 

Við hjá handknattleiksdeildinni viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir veturinn og hlökkum til haustsins og þeirra ævintýra sem bíða okkar.