Handbolti - Karolina og Marta framlengja samninga sína!

26.mar.2020  17:59

Karolina Olszowa og Marta Wawrzynkowska skrifuðu í dag undir eins árs framlengingu á samningi sínum við ÍBV.

Stelpurnar komu til okkar fyrir yfirstandandi tímabil og gerði 1 árs samning. Þær hafa spilað stór hlutverk í liðinu og staðið sig með mikilli prýði. Jafnframt hafa þær fundið sig vel í Eyjum og segjast ótrúlega ánægðar með fólkið og stemninguna hérna.

Við erum því ótrúlega ánægð með að þær hafi samþykkt að leika a.m.k. eitt tímabil í viðbót og verða þær klárar í slaginn á komandi tímabili.

Áfram ÍBV

Alltaf, alls staðar!