Handbolti - Birna Berg til ÍBV!

23.mar.2020  11:00

Birna Berg Haraldsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV.

Birna er örvhent skytta og hefur leikið með íslenska landsliðinu undanfarin ár, en með landsliðinu hefur hún skorað 88 mörk í 45 leikjum.

Birna hefur leikið erlendis í atvinnumennsku frá árinu 2013. Hún hóf atvinnumannaferilinn í Savehöf í Svíþjóð en hefur síðan leikið með Glassverket IF í Noregi, Aarhus í Danmörku og nú síðast með Neckarsulmer í þýsku úrvalsdeildinni.

Við hjá ÍBV erum spennt fyrir að fá Birnu Berg í okkar raðir bjóðum hana hjartanlega velkomna til Eyja!

Áfram ÍBV

Alltaf, alls staðar!