Fótbolti - Knattspyrna kvenna gerir samninga

18.nóv.2019  11:47

Í gær skrifaði ÍBV undir samninga við Fatma Kara og Kristjönu Sigurz.
Fatma hefur leikið hér á landi með HK/Víkingi en hún á að baki 35 landsleiki fyrir Tyrkland.
Kristjana kemur hinsvegar að láni frá Breiðabliki en hún á að baki 15 unglingalandsleiki og þykir mjög efnilegur leikmaður.
ÍBV eru einnig búnar að semja við Þýskan miðjumann og munu svo á næstu dögum undirrita samninga við tvo Bandaríska leikmenn. 
ÍBV stefnir að því að bæta við sig enn fleiri leikmönnum á næstu vikum.
Þá skrifaði Sonja Ruiz undir samning um áframhaldandi starf sem nuddari liðsins.

Þá kemur einnig fram í fréttatilkynningunni frá ÍBV að Clara Sigurðardóttir er samningsbundin ÍBV út næsta leiktímabil.

Eins og áður hefur komið fram er Andri Ólafsson þjálfari liðsins, Birkir Hlynsson  aðstoðarþjálfari og  Þorsteinn Magnússon verður markmannsþjálfari.