Handbolti - Tveir nýir leikmenn til liðs við kvennalið handboltans

01.ágú.2019  11:09

ÍBV hefur gengið frá samningi við tvo nýja leikmenn fyrir kvennaliðið en það eru Marta Wawrzynkowska og Karolina Olszowa en báðar koma þær frá Póllandi.

Marta er 27 ára gamall markvörður sem var síðast á mála hjá SPR Pogon Szcecin en hún gerir samning við ÍBV til eins árs.              

Karolina er 26 ára gömul skytta og var síðast á mála hjá Vistal Gdynia í Póllandi og hún gerir jafnframt eins árs samning við félagið.

Við bjóðum stelpurnar velkomnar til Eyja og hlökkum til samstarfsins.

 

Áfram ÍBV

Alltaf, alls staðar!