Fótbolti - Nökkvi Nökkvason í ÍBV

08.jan.2018  10:28

Nökkvi Már Nökkvason skrifaði um helgina, undir þriggja ára samning við ÍBV. Nökkvi er 17 ára varnarmaður og kom til ÍBV frá Stjörnunni sumarið 2017. Til gamans má þess geta að hann er sonur Nökkva Sveinssonar sem átti farsælan feril með ÍBV árunum 1991-1996. Ungur og efnilegur peyji hér á ferð og óskum við honum innilega til hamingju.