Eitthvað gengur það erfiðlega að koma leik Þórs og ÍBV á sem frestaðist
í gær. Hann átti að fara fram kl 14:00 í dag en þegar Eyjaliðið mætti
uppá völl í morgun var sagt að vélin væri biluð og hafa leikmenn því
verið í biðstöðu síðan þá. Nú rétt í þessu var verið að ræsa
mannskapinn uppá flug og verður leikurinn líklegast settur á 16:30 eða
17:00, það er ekki alveg komið á hreint. Við setjum inn staðfestingu á
leiktíma þegar okkur berst hann. Leiknum verður lýst á
www.ibvfan.is. ÁFRAM ÍBV!