Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Erlu Hrönn Unnarsdóttur, Friðriku Rut Sigurðardóttur og Milenu Mihaelu Patru í leikmannahóp sem kemur saman til æfinga 16.-18. nóvember nk. Æfingarnar fara fram í Miðgarði.
ÍBV óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og góðs gengis!