Yngri flokkar - Milena í lokahóp U17 hjá KSÍ

30.sep.2026  15:19

Tekur þátt í undankeppni EM í Þýskalandi

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 hjá KSÍ, hefur valið Milenu Mihaelu Patru í leikmannhóp til þátttöku í undankeppni EM sem fram fer í Þýskalandi dagana 8.-16. október nk. Liðið æfir á Íslandi dagana 6. og 7. október áður en haldið er til Þýskalands 8. október.

Leikir Íslands:

Föstudagur 9. október kl. 17:00 Ísland - Tékkland

Mánudagur 12. október kl. 12:30 Þýskaland - Ísland

Fimmtudagur 15. október kl. 12:30 Ísland - Kasakstan

 

ÍBV óskar Milenu innilega til hamingju með valið og góðs gengis!