Halldór Stefán Haraldsson og Jovan Kukobat, landsliðsþjálfarar U19 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Agnesi Lilju Styrmisdóttur, Birnu Dögg Egilsdóttur, Klöru Káradóttur og Lilju Kristínu Svansdóttur til æfinga 23.-29. nóvember nk.
Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Daði Arnarsson, landsliðsþjálfarar U17 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Glódísi Dúnu Óðinsdóttur í 16 manna hóp sem tekur þátt í undankeppni EM í Færeyjum 25.-30. nóvember nk. Liðið kemur saman til æfinga 21. nóvember og æfir fram að brottför til Færeyja en jafnframt er þessi landsliðshópur boðaður á mánudagsæfingar 2., 9. og 16. nóvember.
Heimir Örn Árnason og Sunna Jónsdóttir, landsliðsþjálfarar U15 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Bríeti Ósk Magnúsdóttur til æfinga 26.-29. nóvember nk.
ÍBV óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og góðs gengis!