Yngri flokkar - Emil Gauta í lokahóp U17 hjá KSÍ

17.sep.2026  14:34

Tekur þátt í undankeppni EM 2027 í Bosníu og Hersegóvínu

Ómar Ingi Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hjá KSÍ hefur kallað Emil Gautason inn í leikmannahóp sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni EM 2027 dagana 21.-30. september nk. Ísland er þar í riðli með Bosníu og Hersegóvínu, Gíbraltar og Grikklandi, en leikið er í Bosníu og Hersegóvínu.

Ísland hefur leik gegn Gíbralatar 23. september, mætir heimamönnum 26. september og endar svo á leik gegn Grikklandi 29. september.

Þau lið sem enda í tveimur efstu sætum riðilsins verða í A deild í seinni umferð undankeppninnar og leika um sjö laus sæti í lokakeppninni sem fer fram í Lettlandi 24. maí - 6. júní 2027.

Liðin sem enda í tveimur neðri sætum riðilsins leika í B deild undankeppninnar í seinni umferðinni og munu því ekki eiga möguleika á sæti í lokakeppninni.

 

ÍBV óskar Emil innilega til hamingju með valið og góðs gengis!