Fótbolti - Liam Daði til ÍBV

12.feb.2026  14:00

Knattspyrnumaðurinn Liam Daði Jeffs hefur gengið til liðs við ÍBV en hann kemur frá Þrótti Reykjavík, hann gerði fjögurra ára samning við knattspyrnudeildina. Liam er uppalinn í Vestmannaeyjum en foreldrar hans eru Ian Jeffs og Sigríður Ása Friðriksdóttir sem hafa bæði unnið magnað starf fyrir knattspyrnudeild ÍBV.

Liam verður tvítugur á árinu en hann lék með ÍBV upp alla yngri flokkana, allt þar til hann flutti á höfuðborgarsvæðið á 16. aldursári. Hann var lykilmaður í liði Þróttar á tímabilinu en hann skoraði 10 mörk í þeim 24 leikjum sem hann spilaði með liðinu í Íslandsmótinu þegar Þróttarar rétt misstu af sæti í efstu deild. 

Lengi vel var Liam miðjumaður en hann færði sig framar á völlinn síðustu árin sín í yngri flokkunum og var orðinn góður sóknarmaður í 2. flokki þegar hann fór að fá fleiri tækifæri í meistaraflokki Þróttar sem hann nýtti einstaklega vel svo eftir var tekið.

Það er mikið gleðiefni fyrir ÍBV að fá í sínar raðir Eyjamann sem býr yfir þeim gæðum sem Liam hefur og hlakkar knattspyrnuráðið til samstarfsins. 

Velkominn aftur heim!