Fótbolti - Sigurður Grétar framlengir til tveggja ára

10.feb.2023  12:55

Eyjamaðurinn Sigurður Grétar Benónýsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV út knattspyrnutímabilið 2024. 

Sigurður er 26 ára gamall sóknarmaður sem hefur verið leikmaður ÍBV alla ævi hérlendis ef fráskilið er tímabilið 2020 þar sem Siggi lék með Vestra. 

Hann hefur skorað 8 mörk í 45 KSÍ leikjum með ÍBV og tók þátt í tveimur leikjum á síðasta ári, þar sem hann var að glíma við meiðsli. Sigurður hefur eins og margir knattspyrnuleikmenn frá Eyjum einnig leikið með KFS þar sem hann var reyndist liðinu happafengur í 3. deildinni.