Fótbolti - Arnar Breki í æfingahóp U-21

02.feb.2023  11:51

Davíð Snorri Jónasson U-21 landsliðsþjálfari hefur valið Arnar Breka Gunnarsson í æfingahóp fyrir U-21 landslið íslands. Æfingahópurinn að þessu sinni er eingöngu skipaður leikmönnum sem leika á Íslandi.

Æfingarnar eru undirbúningur fyrir vináttulandsleik gegn Írum sem fram fer í mars.

Lokahópurinn verður tilkynntur síðar.

ÍBV óskar Arnari Breka innilega til hamingju með valið.