Fótbolti - Guy Smit til ÍBV frá Val

17.jan.2023  14:00

Markvörðurinn Guy Smit hefur verið lánaður til ÍBV frá Val út keppnistímabilið 2023.

Guy er 26 ára gamall Hollendingur sem lék með Val á síðustu leiktíð en Leikni Reykjavík tímabilin tvö þar áður. Hann hefur þó leikheimild með ÍBV í leikjum gegn Val, þrátt fyrir að vera á láni þaðan.

Hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í marki Reykjavíkurliðanna á síðustu árum. 2016 var hann fenginn til reynslu hjá Arsenal er liðið var í markvarðakrísu.

ÍBV býður Guy velkominn til liðsins.