Fótbolti - Knattspyrnuskólinn færður til vegna snjós

27.des.2022  10:54

Æfing dagsins í knattspyrnuskólanum færist til 30. desember. Þar sem ekki er hægt að tryggja að allir eða allavega flestir komist í knattspyrnuskólann í dag vegna ófærðar á vegum bæjarins hefur verið ákveðið að færa knattspyrnuskólann aðeins til og hliðar öllu um einn dag.

Skólinn fer núna fram 28., 29. og 30. desember á áður auglýstum tímum sem eru:

Fyrri hópur 11:15-13:15 alla dagana.

Seinni hópur 13:30-15:30 alla dagana.

Pizzuveislur verða eftir síðustu æfingar hvors hóps í Týsheimili.

Vonandi sýnið þið þessu skilning.

Bkv. Knattspyrnudeildin