Fótbolti - Eyþór Daði framlengir

30.jan.2022  12:54

Gaman er að tilkynna að Eyþór Daði Kjartansson hefur skrifað undir 2ja ára samning við ÍBV. Eyþór er einn af okkar efnilegu leikmönnum en hann hefur spilað 21 leik fyrir félagið og skorað í þeim 1 mark. Frumraun hans var í lokaleik ÍBV 2019 þegar hann kom inn á gegn Stjörnunni í Pepsi Max deildinni. Í fyrra fór Eyþór Daði í lán til KFS og spilaði hann þar 13 leiki og skoraði mjög gott mark.

Knattspyrnuráð fagnar þessu og óskar Eyþóri til hamingju með nýjan samning. Áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!