Fótbolti - Ársrit fótboltans komið út

22.des.2020  13:28

Út er komið ársrit fótboltans fyrir fótboltaárið 2020. Lesið með að smella hér

Blaðið er árleg útgáfa og í ár má finna fjölbreytt og áhugavert efni. Rætt er við þjálfara, leikmenn  og stjórnarmenn um tímabilið sem leið, forvitnast um hvernig var að halda krakkamótin á COVID tímum, Ingó veðurguð segir frá hvernig er að eiga Þjóðhátíðarlag fyrir hátíð sem aldrei varð, Glenn lagði skóna á hilluna, þriðju deildar stjarna komin í þjálfarahóp ÍBV, glæsilegu fótboltasumri KFS gerð skil og ítarleg yfirferð yfir fótboltasumar yngri flokka. Ársritið er rafrænt í ár, rétt eins og í fyrra. Til gamans má geta að lestur á ársritinu í fyrra var geysilega mikill enda býður rafræn útgáfa upp á að ÍBV-arar út um allan heim geta lesið blaðið.

Knattspyrnuráð ÍBV vill óska öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir stuðninginn á þessu skrýtna ári sem er að líða. Þá vill ráðið sérstaklega þakka bakhjölrum og styrktaraðilum fyrir stuðnginginn á þessu erfiða ári. Áfram ÍBV!