Fótbolti - Gonzalo Zamorano til ÍBV!

16.nóv.2020  10:06

ÍBV hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir átökin í 1. deildinni næsta sumar en Gonzalo Zamorano hefur gert 2ja ára samning við félagið. Gonzalo lék með Víkingi Ólafsvík í sumar og þótti með betri mönnum deildarinnar þar sem hann skoraði hvert markið á fætur öðru. Velkominn Gonzi og áfram ÍBV, alltaf alls staðar!