Geir Sveinsson er búinn að tilkynna 28 manna hóp sem á möguleika að spila á EM í Króatíu. ÍBV á þrjá leikmenn í þessum hópi þá Aron Rafn, Kára Kristján og Theodór. 16 leikmenn verða svo valdir fyrir mótið og er leyfilegt að gera tvær breytingar á hópnum yfir mótið. Vonumst við að sjálfsögðu eftir að sjá eyjastráka á parketinu í Króatíu í janúar.