Fótbolti - Sísí Lára í hóp hjá A landsliðinu

16.okt.2017  10:42

Færði félaginu gjöf eftir EM

Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari hefur valið Sigríði Láru Garðarsdóttur í hópinn sem mætir Þýskalandi og Tékklandi í undankeppni HM 2019. Leikurinn á móti Þýskalandi fer fram í Wiesbaden föstudaginn 20. október og leikurinn gegn Tékklandi fer fram í Znojmo þriðjudaginn 24. október. Leikirnir verða báðir í beinni útsendingu á RÚV.

Um leið og við óskum Sísí Láru til hamingju með valið þá viljum við þakka henni fyrir frábæra gjöf sem hún færði félaginu eftir að hún kom heim frá Hollandi, en það var innrömmuð landsliðstreyja sem hún klæddist í leik íslenska landsliðsins á móti Sviss á EM í sumar.