Fótbolti - Felix Örn og Arnór Gauti í lokahóp U-21 hjá KSÍ

23.ágú.2017  11:21

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið Felix Örn Friðriksson og Arnór Gauta Ragnarsson í hópinn sem mætir Albaníu í riðlakeppni EM19. En leikurinn fer fram á Víkingsvelli 4. sept. nk.

Um er að ræða fyrsta leik Íslands í riðlinum en auk Íslands eru Norður-Írland, Eistland, Slóvakía, Spánn og Albanía í riðlinum.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með árangurinn.