Handbolti - Þrír lykilleikmenn framlengja við ÍBV handbolta

20.ágú.2017  23:17

Frábærar fréttir úr herbúðum ÍBV Handbolta.
Þau Kristrún Hlynsdóttir, Ester Óskarsdóttir og Magnús Stefánsson hafa öll skrifað undir nýja samninga við ÍBV, Kristrún til tveggja ára og Ester og Magnús eitt ár. Þessa leikmenn þarf varla að kynna fyrir aðdáendum ÍBV enda hafa þau öll leikið stór hlutverk fyrir ÍBV undanfarin ár. Þetta eru því miklar gleðifréttir að þessir leikmenn hafa valið að halda áfram að spila fyrir ÍBV.
Myndin er tekin við undirskrift á 900 Grillhús, með leikmönnunum á myndinni eru þau Valgerður Guðjónsdóttir og Guðjón Örn Sigtryggson úr handknattleiksráði.

Áfram ÍBV