Handbolti - Góð helgi í handboltanum

02.okt.2016  21:11

Frábær helgi að baki hjá meistaraflokkum ÍBV . Á fimmtudaginn unnu strákarnir góðan sigur sigur á Stjörnunni í Olísdeild karla 30-23. Á föstudaginn fékk svo U liðið Míluna í heimsókn og gerðu sér lítið fyrir og unnu 37-33, glæsilegur sigur hjá þessum efnilegu strákum. Á laugardaginn unnu stelpurnar svo lið Selfoss 32-29 i Olísdeildinni. 
Á myndinni má sjá þá Friðrik Hólm Jónsson, Darra Viktor Gylfason, Elliða Snæ Viðarsson og Dag Arnarsson fagna sigrinum á móti Stjörnunni á fimmtudaginn en þeir léku einnig með U liðinu á móti Mílunni (mynd: Sigfús Gunnar)

Áfram ÍBV