Handbolti - Frítt í Herjólf fyrir stuðningsmenn á leik Hauka - ÍBV

27.apr.2016  15:48

Herjólfur hefur ákveðið að bjóða 150 stuðningsmönnum ÍBV frítt fram og til baka til þess að sjá leikinn á föstudaginn. Strákarnir eru komnir með bakið upp við vegg og þurfa á góðum stuðning að halda. Eyjamenn eru vanir að standa saman þegar svona stendur á og er ÍBV virkilega ánægð með þessa frábæru ákvörðun og stuðning frá Herjólfi. Leikurinn er kl. 18. 30 á Ásvöllum.

Áfram ÍBV og þakkir til Herjólfs