Handbolti - Bæði stelpurnar og strákarnir með forustu í einvígunum

15.apr.2016  13:49

Veislan er rétt að byrja. Á Laugardaginn kl. 16.00 fá stelpurnar Fram í heimsókn. Með sigri næðu þær að tryggja sér í undanúrslit, þannig að stuðningur á heimavelli er hrikalega mikilvægur. Á sunnudaginn fara strákarnir svo á nesið og mæta Gróttu aftur kl. 16.00. Það var frábært að horfa á strákana klára fyrsta leikinn í einvíginu á fimmtudaginn. Skorum á alla sem hafa tök á að mæta að láta sjá sig á Seltjarnarnesinu og styðja við bakið á þeim. Fyrir þá sem ekki komast þá verður leikurinn sýndur á RÚV.
Þetta fer vel af stað, en stuðningur ykkar skiptir sköpum eins og alltaf í þessu.

Áfram ÍBV, þar sem hjartað slær.