Handbolti - Magnús Stefánsson, Ester Óskarsdóttir og Arnar Pétursson framlengja við ÍBV

11.apr.2016  23:47

Þær frábæru fréttir bárust í dag úr herbúðum ÍBV að Ester Óskarsdóttir og Magnús Stefánsson, fyrirliðar ÍBV og Arnar Pétursson þjálfari karla liðsins framlengdu í dag samning sinn við félagið. 

Öll skrifuðu þau undir eins árs samning og var samningurinn við Magnús og Ester undirritaður hjá umboðsmanni Ölgerðarinar í Vestmannaeyjum, Heildverslun Karl Kristmanns, sem hefur verið einn aðalstyrktaraðili ÍBV undanfarin ár.

Það eru mikil gleðitíðindi að Magnús og Ester hafi valið að framlengja við ÍBV. Þau eru bæði mikilvægir leikmenn, auk þess sem þau eru miklir félagsmenn, alltaf tilbúin að leggja mikið á sig utan vallar sem innan fyrir félagið. Einnig fagnar ÍBV því að Arnar ætli að þjálfa strákana áfram og halda þeim á meðal toppliða deildarinnar líkt og undanfarin sex ár.

Öll verða þau í eldlínunni í vikunni þegar úrslitakeppni Olísdeildanna hefst. Stelpurnar ríða á vaðið með leik í Safamýrinni gegn Fram  miðvikudaginn 13. apríl kl.19:30 og strákarnir fylgja í kjölfarið á fimmtudaginn 14. apríl er þeir mæta Gróttu hér heima kl. 18:30.