Handbolti - Tveir bikarleikir og einn deildarleikur hjá mfl. kvenna í vikunni.

19.jan.2016  08:10

Það verður mikið að gera hjá meistaraflokk kvenna í vikunni. Á miðvikudaginn eigum við bikarleik á móti Stjörnunni. Stjarnan hefur verið á miklu flugi undanfarið en okkar stelpur ætla sér áfram í bikarnum.
Á föstudaginn er svo komið að ÍBV 2 að taka þátt í bikarnum. Þar munu gamlar kempur í bland við ungar og efnilegar Eyja stelpur mæta liði ÍR. Leikur sem engin má missa af.
Á laugardaginn eigum við svo ÍR í deildinni. Stelpurnar eru í efsta sæti deildarinnar, með sigri í þeim leik munu stelpurnar halda því sæti. Þar viljum við vera. smile broskall 
Við hvetjum alla til þess að mæta á völlinn og styðja við stelpurnar.
Áfram ÍBV. Alltaf, alstaðar.