Valinn hefur verið fyrsti Afrekshópur kvenna á vegum HSÍ. Hópurinn verður við æfingar næstu þrjár vikur undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ. ÍBV á þrjá fulltrúa í hópnum sem eru Díana Dögg Magnúsdóttir, Drífa Þorvaldsdóttir og Erla Rós Sigmarsdóttir.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.