Fótbolti - Devon Már gerir 2ja ára samning.

05.feb.2014  13:03
Í dag skrifaði einn af efnilegustu leikmönnum ÍBV Devon Már Griffin sem er fæddur 1997 undir 2ja ára samning við uppeldisfélag sitt ÍBV.  Devon Már vakti fljótt athygli fyrir hæfileika sína og hefur staðið sig afar vel fyrir yngri flokka félagsins.  Devon Már hefur verið í æfingahópi U-17 ára landsliðsins undanfarið og staðið sig vel.  ÍBV væntir mikils af Devoni Má í framtíðinni.
 
ÁFRAM ÍBV.