Handbolti - Nemó farin til Sviss.

11.apr.2013  11:12
Nemanja Malovic hefur samið við Amicitia Zurich í Sviss og mun leika með þeim næstu 2 keppnistímabil. Reynt var að semja við Nemanja um áframhaldandi samning en það var ekki hægt að keppa við þau launakjör sem honum buðust í ölpunum.
 
Það er nokkuð ljóst að karlaliðið verður fyrir mikilli blóðtöku þegar þessi góði drengur heldur á önnur mið, en þjálfarar og stjórn eru þegar byrjuð að leita að arftaka Nemó.
 
ÍBV þakkar þessum frábæra leikmanni samstarfið og vonar að honum gangi vel á nýjum vettvangi.
 
Stjórn handknattleiksdeildar.