Handbolti - Ivana ekki meira með á tímabilinu, fær ekki framlengt landvistarleyfi.

10.mar.2013  11:46
Ivana Mladenovic mun ekki leika meira með ÍBV á þessu keppnistímabili. Landvistarleyfi hennar er lokið og fær hún ekki framhald á því. Ivana kom til ÍBV fyrir síðasta tímabil og hefur leikið vel með liðinu. Það er því mikil eftirsjá af henni og skarð hennar vandfyllt. Ivana og Sasha, maður hennar, fara frá Eyjum í dag og af landi brott á morgun mánudag. ÍBV þakkar þessu góða fólki fyrir samvinnuna og vonar að þeim gangi vel á nýjum vettvangi.