Handbolti - Miðasala á FINAL - 4 hafin.

01.mar.2013  09:04
Stelpurnar okkar eru nú á fullu að undirbúa sig fyrir frábæra helgi í Laugardalshöll. Þær munu etja kappi við Íslandsmeistarana, Val , í undanúrslitum. Leikurinn fer frá laugardaginn 9. mars kl 13.30. ÍBV fékk 500 miða til að selja og ætlum við að selja okkar stuðningsmönnum á dúndurdíl eða 1000 krónur. Krókódílar fá miðann á 800 krónur. Fólk í Reykjavík getur nálgast miða hjá honum Víði Róberts í Bílamarkaðnum Smiðjuvegi 46e (Gula gata) Kópavogi og er fólk vinsamlegast beðið um að greiða með reiðufé.
 
Gerum laugardaginn skemmtilegan og sláum út Íslandsmeistarana!
 
Áfram ÍBV