Handbolti - Dregið í bikarnum í hádeginu.

24.jan.2013  10:34
Núna í hádeginu verður dregið í 8 liða úrslitum Símabikars HSÍ. ÍBV á þar 3 lið, A lið karla og A og B lið kvenna. Í pottinum verða:
8 liða úrslit karla: Akureyri, FH, Haukar, ÍBV, ÍR, Selfoss, Stjarnan og Þróttur
8 liða úrslit kvenna: Afturelding/ÍBV, Fjölnir/Selfoss, Fylkir/FH, Fram, Grótta, HK, Valur og ÍBV2 
 
Okkar maður á staðnum verður Pálmi Harðarson, bikarsonur!